Vögguvísa og Pollapönk á lestrarhátíð
Vögguvísur verða í brennidepli í mörgum leikskólum á lestrarhátíð Bókmenntaborgarinnar Reykjavík í október. Skólarnir hafa verið hvattir til að vinna með vögguvísur á fjölbreyttan hátt og skiptast á hugmyndum á heimasíðu lestrarhátíðar. Þá hafa foreldrar fengið hvatningarbréf um að lesa með börnum sínum á hátíðinni.
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO hefur jafnframt gefið leikskólum borgarinnar nýja vögguvísu að gjöf. Hún er samin af þeim leikskólakennurunum og Pollapönkurunum Haraldi Frey Gíslasyni og Heiðari Erni Kristjánssyni. Vögguvísan heitir Draumalandið og munu börn, foreldrar og leikskólakennarar eflaust læra hana áður en lestrahátíðinni lýkur. Hér má heyra Draumalandið í flutningi þeirra félaga.
Sjá texta við lagið á íslensku og pólsku.
Á lestrarhátíðinni er Vögguvísa eftir Elías Mar meginviðfangsefnið, en hún hefur verið kölluð fyrsta Reykjavíkursagan. Í henni er greint frá Bambínó og fleiri ungmennum, svingpjöttum og vampírfésum, sem sletta og slangra. Sagan verður einnig til umfjöllunar í grunnskólunum og framhaldsskólum borgarinnar á lestrarhátíð og eru lesendur hennar m.a. hvattir til að senda inn ýmis slanguryrði úr unglingamáli nútímans.
Á heimasíðu Bókmenntaborgarinnar má sækja hugmyndir að því hvernig vinna má með efni bókarinnar í skólum og leshringjum.