Vinnusmiðjur um ævintýralegar gönguleiðir

Farið verður yfir tilgang og notkunarmöguleika verkefnisins Ævintýri á gönguför í vinnusmiðju sem haldin verður mánudaginn 3. desember í Borgartúni 12 - 14. Smiðjan hefst kl. 8:30 og munu þátttakendur útbúa gönguleiðir í sínu hverfi sem og öðrum hverfum borgarinnar. Einnig munu þeir móta eigin verkefni með handbókina Ævintýri á gönguför að leiðarljósi. Skráning fer fram á heidajack@internet.is eða í síma 823 7085.

Þetta er önnur vinnusmiðjan í tengslum við verkefnið Ævintýri á gönguför, en sú fyrsta var haldin í liðinni viku fyrir starfsfólk í leikskólum í Breiðholti. Þar voru gönguleiðir  og útikennsluverkefni kortlögð og fengu starfsmenn að spreyta sig á því að útbúa nýjar leiðir og verkefni fyrir börnin. Mikil ánægja með vinnusmiðjuna og fóru allir þaðan ríkari af hugmyndum fyrir útikennslu. 

Nú er búið að vinna efni fyrir Breiðholt og Laugardal/Háaleiti til viðbótar við Ævintýrin í miðborginni - sjá handbók.

Á næstuni munu verða haldnar vinnusmiðjur fyrir starfsfólk í öllum hverfum borgarinnar og verða þær auglýstar nánar síðar.