Viltu leggja okkur lið?

Viltu leggja okkur lið?

Heilahristingur, heimanámsaðstoð á Borgarbókasafni, byrjar aftur eftir sumarfríið um miðjan september. Heilahristingur er eitt af mörgum fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns og felst í því að aðstoða börn og unglinga við heimanámið. Heilahristingur er unninn í samvinnu við Reykjavíkurdeild Rauða krossins.

 

Heilahristingur er í boði fyrir fyrir nemendur í 5. - 10. bekk og nemendur á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Sjálfboðaliðar taka á móti þeim nemendum sem hafa áhuga á að nýta sér aðstoðina.

Nú leitum við að sjálfboðaliðum til að leggja okkur lið í þessu skemmtilega verkefni. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við Karen Theódórsdóttur, verkefnastjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða krossins, s. 545 0415, netfang karen@redcross.is.

Nánari upplýsingar á fjölmörgum tungumálum er að finna á heilahristingur.is.