Villa Bergshyddan 2013

Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.

Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni í eina eða tvær vikur á tímabilinu 15. apríl - 29. september 2013. Dvalargjald fyrir eina viku eru 800 sænskar krónur.



Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld.

Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynningu á umsækjanda. Umsókareyðublöð má finna á: http://www.stockholm.se/KulturFritid/Stod/nordiskt_kultursamarbete/.

Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2013 til:

Stockholms Kulturförvaltning,

Nordiskt kultursamarbete,

Hanan Haidari,

Box 16113

SE - 103 22 Stockholm

Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir verkefnastjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1527, netf. nanna@reykjavik.is og Hanan Haidari hjá Stokkhólmsborg netf. hanan.haidari@stockholm.se