Viðey á Times Square
Viðey skartaði sínu fegursta á Times Square í New York síðastliðinn laugardag. Ljósmyndum af Viðey var varpað á hús, veggi og ljósaskilti á torginu á alþjóðlega friðardaginn sem var laugardaginn 22. september. Listakonan og friðarsinninn Yoko Ono stóð fyrir þessari sérstöku uppákomu en hún tók sjálft Times Square á leigu þennan dag til að koma boðskap sínum um frið á framfæri.
Tengsl listakonunnar við Viðey eru flestum kunn en þar stendur og ljómar Friðarsúla Yoko Ono sem er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið. Friðarsúlan verður tendruð með friðsælli athöfn í Viðey þann 9. október nk. og mun lýsa fram til 8. desember.
Sjá nánar:
http://pinterest.com/yokoono/imagine-peace-times-square-nyc-peace-day-12-sept-2.
http://imaginepeace.com/archives/18503.
https://twitter.com/yokoono.
http://www.huffingtonpost.com/2012/07/06/yoko-onos-instagram-accou_n_1654852.html.
http://www.nypost.com/p/pagesix/peace_is_the_word_bmdRY15q9BPD2Eb2Ee36TL.
http://www.timeslive.co.za/entertainment/celebrity/2012/09/21/yoko-ono-takes-over-times-square-for-international-peace-day.