Vesturbæjarskóli fær nýtt merki

Nemendur og starfsfólk í Vesturbæjarskóla tóku nýtt merki skólans í notkun í morgun. Fáni með merki skólans var dreginn að húni og skólasöngurinn sunginn. Merkið er unnið af Helgu Gerði Magnúsdóttur grafískum hönnuði og fyrrverandi nemanda við skólann.

Merkið sýnir fjóra fugla í mismunandi litum og tákna þeir margbreytileikann í skólastarfinu. Fuglarnir tákna líka nemendur með ósk um að þeir nái flugi í námi, leik og starfi. V-formið sem merkið myndar vísar svo í nafn skólans og gildi hans Virðingu-Vellíðan og Velgengni. 

Krakkarnir í Vesturbæjarskóla eru hæstánægð með nýja merkið og finnst það bæði fallegt í formi og lit.

 

Það er svo skemmtileg tilviljun að Helga Gerður, höfundur nýja skólamerkisins, er dóttir Magnúsar Tómassonar myndlistamanns og höfundar skemmtilegra útilistaverka á skólalóð Vesturbæjarskóla.