Vesturbæjarlestur
Dagana 15. - 19. október efna skólarnir í Vesturbænum til lestrarhátíðar. Hátíðin er skipulögð í tengslum við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Þessa daga verður fjölbreytt dagskrá í gangi en alla dagana verður sameiginleg lestrarstund frá kl. 9.00 til 9.30 þar sem allir eru hvattir til að taka sér bók í hönd og lesa.
Borgarbókasafnið kemur að þessari hátíð með ýmsum hætti og lánar meðal annars grænar bækur í fyrirtæki og verslanir fyrir starfsmenn og viðskiptavini til að glugga í. Einnig mun María Þórðardóttir leikkona og starfsmaður safnsins lesa upp í Pétursbúð og Kjötborg. Nemendur verða á faraldsfæti um hverfið og lesa ljóð og texta í skólum, fyrirtækjum og stofnunum. Allir eru hvattir til að taka þátt í hátíðinni og að taka vel á móti nemendum.