Vesturbæjarflétta um skóla- og uppeldisstarf

Starfsfólk leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðvar í Vesturbæ efna föstudaginn 28. september til fagfléttu allra þeirra sem sinna skóla- og uppeldisstarfi með börnum í hverfinu. 

Vesturbæjarfléttan hefst með sameiginlegu fagþingi, tengslamyndun og umræðum, en eftir hádegi verða málstofur og fjölmargar fagsmiðjur í Hagaskóla, Melaskóla og Frostheimum þar sem starfsmenn læra hver af öðrum. Þannig verður t.d.  boðið upp á smiðju um heilsueflandi grunnskóla, tilfinningabækur í lífsleikni, skapandi ferli og lýðræði í skóla- og frístundastarfi. Þá má nefna kennslu í leikjum og útieldun á Hagatorgi. Þjónustumiðstöðin Vesturgarður tekur þátt í þessu fagstarfi svo og Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur.

Þegar nýtt skóla- og frístundasvið tók til starfa haustið 2011 ákváðu stjórnendur í skóla- og frístundastarfi í Vesturbæ að skoða kosti þess að vinna meira saman til að framfylgja stefnuþáttum í fagstarfinu. Þeir hafa hist reglulega og lagt á ráðin og hefur margt skemmtilegt sprottið upp úr því. Vesturbæjarfléttan er þannig samstarf um þekkingarmiðlun á sameiginlegum starfsdegi allra sem vinna á skóla- og frístundasviði í hverfinu eða um 450 starfsmanna.

Smiðjur í Vesturbæjarfléttu

Heilsueflandi grunnskóli - Hagaskóli.

Vinátta virðing og jafnrétti - Hagaskóli.

Leikir og útieldun - félagsmiðstöðin Frosti.

Tilfinningabækur í lífsleikni - leikskólinn Gullborg.

Myndlist og sjálfsmynd - leikskólinn Gullborg.

Samtal starfsfólks eldhúsa - leikskólarnir Ægisborg, Sæborg og Grandaborg. 

Sundur og saman - leikskólinn Ægisborg.

Nám í skapandi ferli - leikskólinn Sæborg. 

Ég og þú og allir hinir - Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur.

Einhverfa - leikskólinn Hagaborg/Þjónustumniðstöðin Vesturgarður.

Ritunarsmiðja og fjölbreytt vinnubrögð - Vesturbæjarskóli.

Hóplestur í Grandaskóla.

Barnaráð og skapandi starf  í Frostheimum.

Lýðræði í leik og starfi - Frostheimar.

Umhverfismennt- kynning á Comeniusarverkefni í leikskólanum Drafnarborg/Dvergasteini.

Málstofa um velferð barna - Vesturgarður.

Málstofa um áfallamál - Vesturgarður.

Stærðfræði í daglegu lífi - Melaskóli.

Læsi í víðum skilningi/Umhverfi Melaskóla.

Tónlistarsmiðja - Vesturbæjarskóli.

Tungumálasmiðja - Vesturbæjarskóli.

Smiðja í anda Reggiostefnunnar - leikskólinn Tjarnarborg/Öldukot.

Málstofa um einelti - Vesturgarður.

Lesum og skiljum - Hagaskóli.