Vængjasláttur á Laugavegi
Listhópar Hins Hússins sköpuðu litríka og skemmtilega stemningu á Laugavegi síðdegis í gær en þá fór fram lokahátíð listhópanna undir yfirskriftinni Vængjasláttur. Sumargatan iðaði af lífi og heyra mátti ljúfa tóna frá hinum ýmsu tónlistarmönnum sem starfað hafa undir merkjum listhópanna, t.a.m. jass frá Blikkálfunum, fiðlutóna frá Guðmundsdætrum, þjóðlega tónlist frá Tveimur kössum á faraldsfæti og hrátt pönk frá stelpunum í Sparkle Poison.
Meðlimir götuleikhúss Hins Hússins komu fram í ýmsum gervum á Laugaveginum og brugðu lifandi pappakassar og hvítklæddar furðuverur á leik við vegfarendur við mikla kátínu. Götulistakonan Súra vann verk sín á Laugaveginum en límbandsverk hennar eru mjög sýnileg í miðborginni. Þá vakti breikdanshópurinn Area of Stylez mikla athygli en hann skipa nokkrir strákar sem sýndu flotta hip-hop takta.
Listhóparnir hafa verið starfandi frá 1995 en í ár voru 23 ungir listamenn í sumarstarfi hjá Reykjavíkurborg. Í listhópunum fær unga fólkið þjálfun við að vinna að list sinni í fullu starfi sem er ómetanlegt tækifæri fyrir það. Þess má geta að í fyrra starfaði hljómsveitin Of Monsters and Men sem listhópur hjá Hinu Húsinu og spilaði þá á götum og torgum fyrir Reykvíkinga og gesti þeirra. Nú hefur hljómsveitin lagt heiminn að fótum sér.
Sumargatan á Laugavegi hefur mælst vel fyrir á meðal almennings og fólk nýtur stemningarinnar á göngugötunni í botn. Þar blómstar kaffihúsalíf og fólk gengur erinda sinna í rólegheitunum án þess að umferð vélknúinna ökutækja spilli fyrir. Kaupmenn og þjónustuaðilar láta vel af sér enda hefur orðið talsverð aukning á veltunni hjá þeim.