Útinám í Breiðholti

Útinám í Breiðholti

Mikill áhugi hefur vaknað í Breiðholti um útinám. Til að styðja við þennan áhuga stóð hverfisstjóri Breiðholts fyrir fræðslufundi um útinám í Gerðubergi 1. október. Fræðslufundurinn var ætlaður fólki sem starfar í Breiðholti með börnum og unglingum. Alls mættu tæplega 100 manns á fundinn og voru það fulltrúar frá skólum, leikskólum, frístundamiðstöð og skátunum.

Fimm aðilar fluttu erindi og deildu góðri þekkingu og reynslu. Það voru: Helena Óladóttir verkefnisstjóri hjá Náttúruskólanum; Ólafur Oddsson verkefnastjóri Lesið í skóginn- með skólum; Jónína Guðný Bjarnadóttir leikskólakennari hjá Hálsaskógi; Anna S. Skúladóttir verkefnastjóri útináms við Ártúnsskóla og  Þórdís Hauksdóttir leikskólakennari.

Fram kom á fundinum að allir þeir sem vinna með börnum og ungmennum, hvort sem er í skóla eða á vettvangi frítímans geta nýtt sér útinám. Kjarni útináms er að nýta umhverfi og náttúru á markvissan hátt í því starfi sem fram fer með barninu/unglingnum. Útinám gefur kost á útiveru, aukinni hreyfingu og að mynda tengsl við náttúruna, nokkuð sem okkur nútímafólki stórum sem smáum er hollt. Rannsóknir hafa staðfest að útinám getur stuðlað að betri heilsu, auknum þroska og betri námsárangri. Útinám er jákvæð upplifun og styrkir tengsl þátttakenda innbyrðis. Útinám er kjörin leið til samstarfs einstaklinga, starfsstaða og stofnana.

Glærur frá fræðslufundinum.