Úrslit í piparkökuhúsakeppni Kötlu
Úrslit í piparkökuhúsakeppni Kötlu sem er til húsa í jólaskógi Ráðhúss Reykjavíkur voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í gær. Alls bárust 22 hús af öllum stærðum og gerðum. Keppt var í tveimur flokkum, flokki fullorðinna og flokki barna, og voru vegleg verðlaun í boði.
Sigurvegari í piparkökuhúsaleik Kötlu árið 2012 er Ólöf Bjarnadóttir og hlaut hún í verðlaun flugferð fyrir tvo til Akureyrar með Flugfélagi Íslands og gistingu fyrir tvo með morgunmat og kvöldverði á Hótel KEA.
2.sætið hlaut Lucie Kazova fyrir fína húsið sitt og hlaut hún að launum gistingu fyrir tvo í svítu í eina nótt ásamt morgunmat og lúxuskvöldverði á Hótel Rangá.
3. sætið hlaut Lilja Bjarnadóttir fyrir Boot Camp stöðina sína og vann sér þar með inn ZO ON gjafabréf að andvirði 20 þús. kr.
Í flokki barna og unglinga voru veitt þrenn verðlaun og ekki var gert upp á milli þeirra því þau eru í raun öll sigurvegarar. Hús Kolbeins og Sigríðar, Eddu Bjargar og Guðnýjar Margrétar Magnúsdóttur urðu í 1. - 3. sæti. Þessir fínu krakkar fengu 25 þús kr. gjafabréf frá ZO ON auk miða fyrir tvo á Dýrin í Hálsaskógi og hljómdisk með lögum úr verkinu.
Reykjavíkurborg óskar verðlaunahöfunum til hamingju með árangurinn.
Piparkökuhúsin verða til sýnis til 21. desember næstkomandi. Einnig má sjá þau á facebook síðu Kötlu.