Unnið með Barnasáttmála SÞ á frístundaheimilum Kamps
6 - 9 ára gömul börn á frístundaheimilum í Miðborg og Hlíðum hafa þessa vikuna unnið að ýmsum verkefnum í tilefni af tuttugu og þriggja ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Markmiðið er að börnin kynnist réttindum sínum og er stuðst við bókina „Réttindin mín“ í verkefnunum. Áhersla er lögð á að öll börn séu mikilvæg, eigi rétt á að tjá sínar skoðanir og að á þau sé hlustað.
Lokahátíð vikunnar verður föstudaginn 23.nóvember þegar farið verður í Réttindagöngu barna í fimmta sinn. Lagt verður upp í gönguna rétt fyrir klukkan þrjú og gengið frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Jón Gnarr borgarstjóri mun taka á móti börnunum.