Unglingar í félagsmiðstöðinni Tíunni styrkja BUGL

Unglingar í félagsmiðstöðinni Tíunni sátu ekki auðum höndum í desember, heldur söfnuðu 150.000 kr. fyrir barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Þau afhentu söfnunarféð í dag og var vel tekið á móti þeim.

Krakkarnir héldu styrktarviku 3.-8 desember og tendruðu þá styrktarljósið sem hannað var af þeim Margréti Sæmundsdóttur og Bendjamín Andra Elvarssyni. Þá stóðu þau fyrir balli fyrir 10-12 ára börn og unglinga til að afla fjár. Þann 6. desember hófst svo útvarpsdagskrá á þeirra vegum og var sent út frá FM Tíunni fá 6. desember til 14. desember. Fótboltakeppni sem stóð í sex klukkutíma var jafnframt liður í fjáröfluninni.

Það voru því glaðir fulltrúar Tíunnar sem afhentu styrktarféð í dag og höfðu þau góða ástæðu til að vera stolt af þessu framtaki.