Ungklassík í Ráðhúsinu
Þriðjudaginn 20. nóvember hefst tónleikaröðin Ungklassík í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nemendur tónlistarskólanna í borginni munu þar koma fram og gleðja gesti með flutningi á klassískum verkum gömlu meistarana.
Fram að áramótum verður Ungklassík haldin dagana 20. nóvember, 11. desember og 18. desember.
Allir tónleikar hefjast klukkan 17:30
Á efnisskrá fyrstu tónleikanna 20. nóvember eru verk eftir J.S. Bach, G.F. Haendel, Beethoven, Rossini, Chopin og Mendelsohn. Flytjendur eru Flemming Viðar Valmundsson á harmóníku, Heiður Lára Bjarnadóttir á selló, Lilja María Ásmundsdóttir á píanó, Birna Borg Gunnarsdóttir á píanó, Rebekka Friðriksdóttir á píanó, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópransöngkona og Halla Marinósdóttir mezzósópran. Meðleikari er Gerrit Schuil.
Í desember verður Tjarnarsal Ráðhússins svo breytt í jólaskóg, sannkallað ævintýraland, sem verður frábær umgjörð fyrir tónleikaröðina.