Umhverfismennt í Hofi

Dagur íslenskrar náttúru markaði upphaf umhverfismenntar og útináms á leikskólanum Hofi í vetur. Öllum börnum og starfsfólki skólans var boðið upp á sólberjasaft í haustsólinni og var hún hituð yfir eldi á leikskólalóðinni. Helena Ólafadóttir frá Náttúruskóla Reykjavíkur aðstoðaði við útiveisluna.

Um árabil hefur útinám verið mikilvægur þáttur í fagstarfinu í Hofi enda Laugardalurinn í næsta nágrenni. Í ár eignaðist leikskólinn útieldunargræjur og er mikill áhugi í leikskólanum á að nýta þær í starfinu. Náttúruskóli Reykjavíkur aðstoðar starfsfólkið við fyrstu skrefin í að nota eld á leikskólalóðinni og í dag var í fyrsta skipti kveikt upp á lóðinni og boðið upp á heita hressingu af eldinum.