Umhverfismennt í hávegum höfð á Kjalarnesi
Leikskólinn Bakkaberg og Klébergsskóli unnu á liðnum vetri skemmtilegt verkefni sem bar heitið Grænir skólar á Kjalarnesi. Það hefur m.a. skilað sér í skemmtilegum örnefnaskiltum sem börnin settu upp. Verkefnið unnu þær Guðrún Dögg Dögg Gunnarsdóttir á Bergi og Katrín Cýrusdóttir í Klébergi með börnum á elsta ári leikskólans og fyrsta ári grunnskólans m.a. í útinámi og listsköpun.
„Við erum að skoða heiminn“
Börnin sýndu þessu verkefni mikinn áhuga og þóttu standa sig vel. Þannig settu þau upp örnefnaskiltin á mettíma, t.d. eitt um Einbúann. Þegar börnin gengu einn kaldan vetrarmorgun með foreldrum sínum og sýndu þeim skiltin blasti Hofsvíkin við á aðra hönd, og Vallárgil á hina. Þá sagði barn með nokkru stolti: „Pabbi, sjáðu við erum að skoða allan heiminn“.