Umferðarmiðstöðin verði miðstöð almenningssamgangna

Borgarráð fjallaði í dag um kauptilboð sem Reykjavíkurborg hefur gert  í Umferðarmiðstöðina við Vatnsmýrarveg. Borgin hyggst kaupa Umferðarmiðstöðina og lóðina sem fylgir henni fyrir 445 milljónir króna. Seljendur eru Mynni ehf og Landsbanki Íslands.

Aðalástæðan fyrir kauptilboðinu er sú að Reykjavíkurborg hyggst nýta Umferðarmiðstöðina sem miðstöð almenningssamgangna í Reykjavík. Að auki verður óvissu varðandi skipulagið á þessu svæði eytt með kaupunum þar sem Reykjavíkurborg mun hafa fullt vald yfir svæðinu. 

Í kringum lóð Umferðamiðstöðvarinnar er svæði sem nefnt hefur verið U-reitur en ríkið skilaði Reykjavíkurborg nýverið því svæði til baka. Með kaupunum á Umferðarmiðstöðinni gefst borginni kostur á að deiliskipuleggja svæðið í heild sinni.  Gerir borgin ráð fyrir fjölbreyttri uppbyggingu á svæðinu enda nýtur það nálægðar við háskólasvæðið í Vatnsmýri og nýjan Landspítala. Hugmyndin er að þarna rísi blönduð byggð lítilla og meðalstórra íbúða sem muni henta ungu fólki. 

 Hugmyndir Reykjavíkurborgar varðandi Umferðarmiðstöðina ganga út á það að leiðakerfi Strætó bs verði breytt þannig að Umferðarmiðstöðin taki að mestu við núverandi hlutverki skiptistöðvar á Hlemmi.  Kaupunum fylgir leigusamningur við Kynnisferðir. Stefnt er að því að gera nýjan samning við fyrirtækið sem taki mið af breyttum aðstæðum en taki jafnframt tillit til hagsmuna fyrirtækisins. 

Öðrum þjónustuaðilum verður boðin aðstaða í húsinu svo það geti orðið öflug skiptistöð í samgöngum sem tengist þjónustu við ferðamenn og flugsamgöngur. Gert er ráð fyrir því að sala á farmiðum, ferðum, upplýsingaþjónusta um gistingu og hótel, aðstaða fyrir leigubíla, bílaleigur og hjólaleigu verði til staðar í húsinu. Þá mun verða aðstaða í húsinu fyrir ýmis konar þjónustu, t.d. litlar búðir, veitingastaði, hraðbanka, netkaffi og fleira sem geri það meira aðlaðandi.