Tímamótasamningur um átak í gerð hjólreiða- og göngustíga

Reykjavíkurborg og Vegagerðin gengu í dag frá tímamótasamningi um átak í gerð hjólreiða- og göngustíga í Reykjavík.  Þetta er í fyrsta skipti sem Vegagerðin kemur að slíkum samningi við sveitarfélag og segir Dagur B. Eggertsson það vera mikið fagnaðarefni. ,,Markmiðið er að Reykjavík verði framúrskarandi hjólaborg“, segir Dagur. 



Með samningnum er skilgreint hvaða leiðir heyri til grunnkerfis en á þeim leiðum skiptist kostnaður við framkvæmdir til helminga. Kostnaður við framkvæmdir er áætlaður um 2 milljarðar króna, en þær hafa ekki verið endanlega tímasettar. 

Stígarnir sem samkomulagið nær til eru allir hluti af skipulögðu stofnstígakerfi Reykjavíkurborgar og í samræmi við hjólreiðaáætlun Reykjavíkur. Mikil áhersla er lögð á umferðaröryggi og með samningnum er áréttuð sú stefna að aðskilja hjólreiðar og bílaumferð þar sem umferðarhraði er mikill.

Í ár er unnið við lagningu hjólreiða- og göngustígs frá Hlemmi og alla leið inn að Elliðarárósum þar sem hann mun tengjast nýjum brúm sem verða lagðar yfir Elliðarárósa í samræmi við samkeppni sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin stóðu sameiginlega að. Þeirri vinnu verður lokið á næsta ári. Þá er í gangi vinna við stíga meðfram Vesturlandsvegi, framhjá Keldum og að Mosfellsbæ. Þeirri stígalagningu líkur í ár.

Endanlegt val og tímasetningar á öðrum samstarfsverkefnum í stígagerð liggur ekki fyrir en eftirfarandi leiðir eru innan ramma samkomulagsins (sjá einnig kort):

  • Laugavegur (frá Hlemmi) – Suðurlandsbraut – Elliðarárósar
  • Vesturlandsvegur
  • Hringbraut
  • Bústaðavegur – frá Hringbraut að Kringlumýrarbraut
  • Kringlumýrarbraut
  • Reykjanesbraut – Breiðholtsbraut
  • Reykjanesbraut – Rafstöðvarvegur
  • Sævarhöfði – Gullinbrú
  • Suðurlandsvegur

 

Reykjavíkurborg mun leiða vinnu við stígagerðina í nánu samráði við Vegagerðina.