Til hamingju með 150 ára afmælið Akureyrarbær
Afmælisdagskrá Akureyrarbæjar hófst á Ráðhústorginu í morgun, þar sem leik- og grunnskólanemendur komu á torgið í skrúðgöngu og afhentu Akureyringum stórt mósaíkverk með afmælismerki bæjarins að gjöf. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri veitti verkinu viðtöku fyrir hönd bæjarbúa. Að því búnu sungu börnin afmælissönginn fyrir afmælisbarnið og fleiri lög til að fagna tímamótunum. Hljómsveitin Hvanndalsbræður steig á svið og spilaði nokkur lög og var börnunum boðið upp á mjólk og skúffuköku. Jón Gnarr borgarstjóri tók þátt í hátíðahöldunum í morgun og verður viðstaddur hluta afmælisdagskrárinnar. Borgarstjóri mun meðal annars vera viðstaddur hátíðarfund bæjarstjórnar Akureyrar í Hofi klukkan 14, opnun sýningarinnar Arsborealis í Ketilshúsinu - Sjónlistamiðstöðinni og dagskrá á dvalarheimilinu Hlíð sem heldur upp á 50 ára afmæli um þessar mundir.
Akureyri varð kaupstaður árið 1862. Þá voru íbúar bæjarins 286. Nú eru þeir liðlega 18.000. Boðið verður upp á veglega dagskrá í tilefni tímamótanna og má skoða dagskrána á heimasíðunni www.akureyri150.is.
Reykjavíkurborg óskar Akureyrarbæ og Akureyringum öllum til hamingju með afmælið.