Þriðjudagsganga í Viðey með táknmálstúlki, 24. júlí
Þriðjudaginn 24. júlí verður boðið upp á leiðsögn með táknmálstúlki í Viðey. Þriðjudagsgöngur Viðeyjar hafa fest sig í sessi hjá dyggum hópi gesta en síðastliðið sumar var í fyrsta sinn boðið upp á leiðsögn á táknmáli. Þessi nýbreytni féll í góðan jarðveg þeirra sem nota táknmál og ákveðið að hún yrði að föstum lið í þriðjudagsgöngum Viðeyjar. Fyrir göngunni fara Jónas Hlíðar Vilhelmsson og Iðunn Ása Óladóttir táknmálstúlkur frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Í sumar er kaffihúsið Í Viðeyjarstofu opið til kl. 22.00 á þriðjudagskvöldum en alla jafna er það opið til kl. 18.00. Aukaferðir til Viðeyjar á þriðjudögum eru kl. 18.15 og 19.15 svo þau kvöld geta gestir komið til Viðeyjar klukkustund áður en leiðsögn hefst og notið þess að borða kvöldverð í Viðeyjarstofu. Í göngulok er svo upplagt að tylla sér niður við Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið um kl. 22.00.
Gjald í ferjuna er kr. 1000.- fyrir fullorðna og kr. 500.- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferju og í Viðeyjarstofu.