Þriðjudagsganga í Viðey 17. júlí – Útijóga með Ragnheiði Ýr

Í þriðjudagsgöngu vikunnar, þann 17. júlí verður boðið upp á útijóga með jógakennaranum Ragnheiði Ýr Grétarsdóttur. Ragnheiður er jógakennari, sjúkraþjálfari og tölvunarfræðingur að mennt og hefur undanfarin ár kennt leikfimi og jóga. Jógaiðkun verður vinsælli með hverju ári sem líður og æ fleiri  tileinka sér þessa þjálfun líkama og hugar. Jógaiðkunin verður létt og leikandi; byrjað með léttum upphitunaræfingum og svo verður gengið um Viðey. Stoppað er nokkrum sinnum á leiðinni og gerðar standandi æfingar og öndunaræfingar. Göngunni lýkur með góðum teygjum á upphafsstað.

Viðey skartar sínu fegursta í júlí og um að gera að njóta útiveru í náttúrunni nú meðan dagur er hvað lengstur. Áhugasömum er bent á að mæta í þægilegum skóm og þægilegum klæðnaði eftir veðri. Gangan er ókeypis og allir velkomnir, börn og fullorðnir.

Í sumar er kaffihúsið Í Viðeyjarstofu opið á þriðjudagskvöldum en alla jafna er það opið til kl. 18.00. Aukaferðir til Viðeyjar á þriðjudögum eru kl. 18.15 og 19.15 svo þau kvöld geta gestir komið til Viðeyjar klukkustund áður en leiðsögn hefst og notið þess að borða kvöldverð í Viðeyjarstofu.  Í göngulok er svo upplagt að tylla sér niður við Viðeyjarstofu, njóta kvöldsólarinnar yfir sundunum og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið um kl.22.00.



Gjald í ferjuna er kr. 1000.- fyrir fullorðna og kr. 500.- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.

Tuesday walk on July 17. – Outdoor Yoga with a Yoga Teacher

In this weeks's Tuesday walk, on July 17. guests will be instructed on Outdoor Yoga. The common way of practicing Yoga is indoors but Yoga teacher Ragnheiður Ýr proves that Yoga can be practised everywhere and nature is the perfect place. The walk starts by Viðey church at 19:30 and is free of charge and open for all.

Tuesdays are longer than other days of the week in Viðey. Two extra trips are added to the schedule at 18:15 and 19:15 and Viðeyjarstofa Café is open longer. This makes it possible for guests in Viðey to enjoy a lovely dinner at the Café, have a pleasant walk around the island, and enjoy delightful refreshments afterwards in the evening sun.

The guided tour is in icelandic and it is free of charge. It starts at 19:30 by Viðeyjarstofa and takes about an hour and a half. Ferry goes back to Skarfabakki at 22:00

Roundtrip to Viðey ISK 1000.- for adults.