Þriðjudagsganga í Viðey 10. júlí
Þriðjudaginn 10.júlí mun Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Viðeyjar leiða göngu um eyna. Í júlí skartar Viðey sínu allra fegursta og gönguleiðir um eyna eru þægilegar og við allra hæfi. Ganga um Viðey með Guðlaugu er fræðandi og skemmtileg í senn og ýmislegt sem gæti komið gestum á óvart í sögu Viðeyjar.
Í sumar er kaffihúsið Í Viðeyjarstofu opið á þriðjudagskvöldum en alla jafna er það opið til kl. 18.00. Aukaferðir til Viðeyjar á þriðjudögum eru kl. 18.15 og 19.15 svo þau kvöld geta gestir komið til Viðeyjar klukkustund áður en leiðsögn hefst og notið þess að borða kvöldverð í Viðeyjarstofu. Gangan hefst um kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Í göngulok er svo upplagt að tylla sér niður við Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið um kl.22.00. Gjald í ferjuna er kr. 1000.- fyrir fullorðna og kr. 500.- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu. Leiðsögnin er ókeypis og öllum heimil.