Þrettándahátíð Vesturbæjar verður sem fyrri ár haldin föstudaginn 6. janúar með pompi og prakt. Venju samkvæmt verður safnast saman við Frostaskjól, á svæði KR, Frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls og Do Re Mí klukkan 18.00. Barna- og stúlknakór Neskirkju taka á móti gestum með ljúfum söng og KR flugeldar verða með kyndla til sölu. Formaður hverfisráðs Vesturbæjar mun svo senda skrúðgöngu af stað með stuttu ávarpi um klukkan 18:10 og munu Ægisbúar leiða viðburðaríka gönguna, óvænt atriði verða á leiðinni... ásamt lúðrablásurum að brennustæðinu á Ægisíðu. Brennan verður tendruð um kl. 18.30. Kakó og kleinur verða gefnar á meðan byrgðir endast, fjöldasöngur verður og Guðmundur Steingrímsson þenur nikkuna. Um klukkan 18.50 sjá KR flugeldar svo um að lýsa upp himininn með flugeldasýningu að hætti hússins! Allir eru hvattir til að mæta vel búnir og skilja bílinn eftir heima. Sjáumst kát í Vesturbænum á þrettándanum og njótum samveru við vini og vandamenn. Kíkið á Snjáldurskinnusíðu (facebook) viðburðarins á slóðinni: http://www.facebook.com/events/317306194967838.