Það er leikur að læra „heima“ á Borgarbókasafninu
Um 30 börn hafa nú þegar nýtt sér heimanámsaðstoðina Heilahristing sem fór aftur af stað mánudaginn 17. september. Eins og síðastliðin fjögur haust býður Borgarbókasafnið í samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða Krossins upp á þjónustu sem styður börn og unglinga í námi og styrkir félagsleg tengsl. Áhersla er lögð á að kynna heimanámsaðstoðina á mörgum tungumálum með það fyrir augum að ná til fjölskyldna sem tala önnur mál en íslensku á heimilinu. Sjálfboðaliðar taka á móti þeim nemendum sem hafa áhuga á að nýta sér aðstoðina í söfnunum. Heilahristingur er í boði fyrir fyrir nemendur í 5.-10. bekk og nemendur á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Það eru allir velkomnir og skólar eru hvattir til þess að kynna Heilahristing fyrir foreldrum og nemendum.
- aðstoð við heimanám í notalegu umhverfi
- stuðning við áframhaldandi nám
- tækifæri til að styrkja sjálfsmyndina
- úrval bóka, kvikmynda, tímarita og tónlistar
- skemmtilegan félagsskap í skapandi umhverfi