Teiknismiðja með K?stutis Kasparavi?ius

Sunnudaginn 9. september kl. 13 verður boðið upp á teiknismiðju með listamanninum og rithöfundinum K?stutis Kasparavi?ius í bókasafninu í Gerðubergi.

K?stutis Kasparavi?ius er höfundur og myndskreytir yfir 50 barnabóka sem komið hafa út um allan heim. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir teikningar sínar og hafa bækur hans verið þýddar á 23 tungumál.

K?stutis er þekktur fyrir stuttar og ljúfar sögur um ýmsar kómískar persónur og hittir lesandinn fyrir birni, svín, kanínur og skjaldbökur í skrýtnum og oft á tíðum flóknum aðstæðum. Vatnslitamyndir K?stutis eru fullar af smáatriðum sem draga að sér athygli barna. Fljúgandi kanínur og talandi jarðaber leysa ímyndunarafl barnanna og trú á eigin getu úr læðingi. Fullorðnir kunna vel að meta hina léttu kímni sem birtist í sögum K?stutis og ung börn, sem kunna jafnvel ekki að lesa, sökkva sér niður í bækurnar hans.

K?stutis fæddist árið 1954 í Aukstadvaris í Litháen. Foreldrar hans, sem voru kennarar, sendu hann til Vilnius til að læra kórstjórn í National M. K. ?iurlionis School of Art. Hugur hans stóð ekki til kórstjórnar og snéri hann sér að listnámi í Vilnius Academy of Fine Arts þaðan sem hann lauk mastersprófi árið 1981.

 

www.kestutiskasparavicius.com.

https://www.facebook.com/Kestutis.Kaspar.

E-mail: kasparart@yahoo.com.