Styrkur Reykjavíkur felst í grænni ferðamennsku og orkumálum

Í rannsókn sem PWC hefur gert á samkeppnishæfni norrænu höfuðborganna kemur fram að helsti styrkur Reykjavíkur felist í sérþekkingu á sviði orkumála og í grænni ferðamennsku. Ýmsir þættir sem hafa áhrif á samkeppnishæfni voru bornir saman til að finna sóknarfærni en meginniðurstaða skýrslunnar er sú að höfuðborgir Norðurlanda þurfi að vinna betur saman til að standast  alþjóðlega samkeppni. Allar búi þær að styrkleikum, ekki síst mikilli lýðræðisvirkni og samkennd íbúa.

Af fjórum völdum mælikvörðum kemur Reykjavík best út í flokknum heilbrigði og öryggi og er þar í öðru sæti á eftir Stokkhólmi, en höfuðborg Svía er hæst í öllum flokkum. Hvergi á Norðurlöndum eru glæpir jafn fátíðir og í Reykjavík og heilbrigðisþjónusta er hér afar góð. Skattaumhverfið í Reykjavík er einnig næst hagfeldast, aðeins í Kaupmannahöfn býðst fyrirtækjum betra umhverfi að því leyti. Þá er eftirtektarvert hversu Reykjavík stendur vel að vígi þegar kemur að þekkingarauði og nýsköpun og er þar á pari við Ósló. Reykvíkingar eru í öðru sæti þegar hlutfall íbúa með æðri menntun er skoðað, og í skólum borgarinnar eru færri nemendur í bekk en víðast hvar annars staðar á Norðurlöndum. Þá standa reykvískir nemendur vel að vígi í tveimur mikilvægum greinum; stærðfræði og vísindum. Einnig er tekið fram að netaðgangur sé hvergi betri en í reykvískum skólum og tækniþekking sé almennt góð.

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir skýrsluna afar gagnlega til stefnumótunar, ekki síst þeir þættir sem þarf að bæta. „Veikleikarnir eru ýmsir sem tengjast smæð borgarinnar og það þurfum við að yfirvinna með öðrum styrkleikum. Þá er ljóst að við höfum klár sóknarfæri á sviði almenningssamgangna og húsnæðismála þar sem við skröpum botninn. Hvoru tveggja er meðal sérstakra áhersluatriða borgarstjórnarmeirihlutans. Þá þurfum við einfaldlega að vinna skipulegar að því að bæta samkeppnishæfni borgarinnar á öllum sviðum. Og það ætlum við að gera.“

 Sjá skýrslu PWC um samkeppnishæfni norrænu höfuðborganna.