Starfsmenn Reykjavíkurborgar mokveiddu í Elliðaánum
Sannkallað mok var í Elliðaánum þegar öflugir starfsmenn Reykjavíkurborgar renndu fyrir lax í ánum sl. föstudag, 13. júlí. Alls veiddust 27 laxar í ánum þann dag, 16 fyrir hádegi og 11 eftir hádegið en veitt er á sex stangir í ánum.
Reykjavíkurborg hefur fimm daga til umráða í ánum í sumar og veiða borgarstarfsmenn og hvunndagshetjur í þrjá daga í ánum. Áður voru þessir dagar notaðir af borgarfulltrúum, gestum Orkuveitu Reykjavíkur og fyrrverandi borgarstjórum. Nú er hafður sá háttur á að starfsmenn Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að benda á dugmikla samstarfsmenn sína og hefur það mælst afar vel fyrir. Bárust fjölmargar ábendingar frá borgarstarfsmönnum um kollega sem ættu skilið að fá að veiða í ánum.
Starfsmenn borgarinnar slógu ekki slöku við þegar fyrsti veiðidagurinn rann upp og mokveiddu. Nutu veiðimenn dyggrar aðstoðar frá félögum í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu. Reykjavíkurborg lætur SVFR í té tvo veiðidaga af fimm í ánum sem félagið nýtir fyrir barna- og unglingastarf sitt en þá veiða ungir veiðimenn í félaginu endurgjaldslaust í ánum.