Starfsemi hafin í nýjum leikskóla í Norðlingaholti

Starfsemi hófst á dögunum í nýbyggðum leikskóla í Norðlingaholti sem heyrir undir Rauðhól. Leikskólinn starfar nú á þremur starfsstöðvum og er hann sá stærsti í borginni.

Nýi leikskólinn er samtengdur Norðlingaskóla og miðast skólastarf við að flæði sé töluvert á milli skólastiganna. Þannig eru eldri börn leikskólans við leik og störf í nýja skólahúsinu sem hefur fengið nafnið Ævintýri. Yfir veturinn vinna leikskólabörnin ýmis verkefni með grunnskólabörnunum og leikskólinn samnýtir mötuneyti grunnskólans.

Nýja leikskólahúsið er ekki fullbúið þó starfsemin sé hafin í því, en þar verða fimm leikskóladeildir með rúmlega hundrað börnum.  

Hinar starfsstöðvar Rauðhóls eru í leikskólabyggingu frá árinu 2007 og í Björnslundi sem tók til starfa 2009.

212 börn eru nú alls í Rauðhóli, en leikskólastjóri er Guðrún Sólveig Vignisdóttir.