Spennistöð breytist í félagsmiðstöð – byrjað á næsta ári

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag að á næsta ári verði hafist handa við að breyta spennistöðinni við Austurbæjarskóla í félags- og menningarmiðstöð fyrir börn og unglinga og aðra íbúa hverfisins.

Jafnframt hvetur ráðið til þess að skoðaðir verði möguleikar á því að húsið verði standsett með aðstoð foreldrafélags skólans og að framkvæmdir verði liður í verkmenntun nemenda í Tækniskólanum sem stunda nám í næsta húsi við Austurbæjarskóla.

Í fjárfestingaráætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að 20 milljónum króna verði varið til þessa verkefnis. Skóla- og frístundaráð telur þá fjárveitingu skynsamlega sem fyrsta skrefið við endurbyggingu spennistöðvarinnar svo draumurinn um félags- og menningarmiðstöð fyrir börn og unglinga í 101, geti orðið að veruleika.

Hugmyndin um að breyta spennistöðinni í félagsmiðstöð kemur af samráðsvettvanginum Betri Reykjavík.