Sorpflokkun á hverju heimili
Blá tunna er nú komin við annað hvert íbúðarhús á Kjalarnesi en þar hófst áætlun Reykjavíkurborgar um flokkun til endurvinnslu á hverju heimili í borginni. Notaður pappír er nú skilgreindur sem verðmæti og því verður ekki lengur heimilt að setja pappír í tunnur undir almennt sorp.
Íbúar í Úlfarsárdal og Grafarholti hafa nú fengið sendan kynningarbækling um þessar breytingar og eru byrjaðir að flokka. Strax á næsta ári hefja Árbæingar og Grafarvogsbúar flokkun á pappír. Breiðholtið tekur við keflinu í febrúar. Háaleiti/Laugardalur í mars. Hlíðar/Miðborg í apríl og loks Vesturbærinn í maí.
Íbúar geta valið um tvær leiðir til að koma pappírnum í endurvinnslu. Annars vegar með því að panta bláa tunnu og hins vegar með því að fara með hann í grenndargáma. Þar er einnig tekið á móti plasti. Þeir sem vilja byrja strax að flokka geta pantað bláu tunnuna á vefsíðunni http://www.pappirerekkirusl.is, hringt í síma 4 11 11 11 eða sent tölvupóst á sorphirda@reykjavik.is.
Reiknað er með því að almennt sorp frá heimilum borgarbúa muni minnka um þriðjung eftir að flokkun á pappír hefur hvarvetna tekið gildi. Breytt sorphirða gefur borgarbúum tækifæri til að endurskoða og fækka tunnum undir almennt sorp og spara með því sorphirðugjöld.
Reykjavíkurborg hefur af þessu tilefni sett upp nýja vefsíðu á íslensku, ensku og pólsku með öllum helstu upplýsingum. Á henni er m.a. hægt að panta tunnu, sjá sorphirðudagatal og tillögur að hagkvæmum lausnum. Reykjavíkurborg hefur einnig sett inn myndir og tillögur á síðuna Pinterest undir heitinu: Pappír er ekki rusl.
Helstu pappírsflokkar eru: bylgjupappi, dagblöð og tímarit, fernur, skrifstofupappír og sléttur pappír. Hægt er að fá kynningarefni, veggspjöld og miða yfir sorprennur í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14.