Sögustaðir og skáld: Frönsk menningararfleifð í túlkun rithöfunda

Franska sendiráðinu og Alliance française hefur áskotnast rétturinn að sýningu sem kallast Sögustaðir og skáld: Frönsk menningararfleifð í túlkun rithöfunda, gefin út af Centre des Monuments Nationaux. Stofnunin, sem hefur umsjón með sögulegum frönskum minjum, bað hundrað rithöfunda að rita texta um sögustað eða söguminjar í Frakklandi.

Nú hefur hluti af þessari sýningu verið settur upp á 1. hæð í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15 og verður sýningin opnuð laugardaginn 6. október. Ýmsir íslenskir og frönskumælandi rithöfundar, leikarar, þýðendur og aðilar úr háskólageiranum voru fengnir til að velja sér einn af sögustöðunum og þýða textann eftir franska rithöfundinn.

Auk umfjöllunar rithöfundanna fylgir söguleg umfjöllun um hvern sögustað eða söguminjar. Sýningin lýsir því á sama tíma ferðalagi um Frakkland gegnum menningarlegar minjar sem og á vængjum skáldanna. Sem dæmi um viðfangsefni rithöfundanna má nefna umfjöllun Martin Page um reistu steinana í Carnac, Julia Kristeva fjallar um bæinn Puy-en-Velay, Pierre Assouline skrifar um bæinn Champs-sur-Marne og Danièle Sallenave fræðir okkur um Savoye-húsið eftir arkítektana Le Corbusier og Pierre Jeanneret.