Snjóbræðsla löguð í Bankastræti

Nú í vikunni verður unnið að viðgerð á snjóbræðslu og hellulögn á gatnamótum Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Af þessum sökum verður að takmarka umferð um gatnamótin frá kl. 9 – 16 í tvo daga.

Miðvikudaginn 24. október verður lokað fyrir umferð niður Laugaveg og Skólavörðustíg við Bergstaðastræti.  Fimmtudaginn 25. október verður lokað fyrir akstur niður Bankastræti við Ingólfsstræti. Opið verður fyrir umferð um Ingólfsstræti báða dagana, en ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæðið.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflunum sem af framkvæmdum kann að stafa og verður opnað á ný eins fljótt og mögulegt er.   Á sama tíma verður einnig unnið við smáviðgerðir í götu á Skólavörðustíg fyrir framan Hegningarhúsið.

Verkið er unnið af Tinnubergi ehf. fyrir Reykjavíkurborg.