Sköpunarkraftur borinn á torg um alla borg

Í Reykjavík er í sumar unnið á 14 stöðum í borginni með almenningssvæði undir merkjum verkefnisins „Biðsvæði - Torg í biðstöðu“, en þar er framtíðarnotkun og möguleikar viðkomandi svæðis til skoðunar. Biðsvæðum var snemma í sumar úthlutað eftir auglýsingu til hópa og einstaklinga sem gera tilraunir í borgarrýminu. Markmið verkefnisins er að glæða almenningsrýmin lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra.

Borgarbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér hugmyndirnar og láta skoðanir sínar í ljós. Upplýsingar um verkefnin eru aðgengilega á vef Reykjavíkurborgar og einnig á samskiptavefnum Facebook.

Sjá nánar hér á vef Reykjavíkurborgar >>>  www.reykjavik.is/bidsvaedi en þar hafa meðal annars verið settir inn tenglar á þau verkefni sem hafa komið sér upp síðu á samskiptavef.

Staðirnir 14 sem unnið er með í sumar teygja sig um alla borg. Verkefnin eru óðum að taka á sig mynd og sumir staðirnir eru þegar tilbúnir. Margt er að gerast eins og sjá má á eftirfarandi lista og rétt að minna á nánari upplýsingar á samskiptasíðum verkefnanna. 

1. Káratorg – er nú þegar tilbúið – bara að njóta.

2. Óðinstorg – lokahönd verður lögð á verkið í þessari viku.

3. Austurbakki – rauða dreglinum verður rennt út í fyrstu  viku ágústmánaðar.



4. Bæjarins bezta torg – vegfarendur er þegar farnir að njóta hluta verksins, sem verður lokið í þessari viku.

5. Hlemmur – gróðursvæði og setusvæði eru komin og verki lýkur í þessum mánuði

6. Laugavegur og Skólavörðustígur – Ýmis inngrip, hengirúm, krítartöflur og fleira, tilbúið í lok júlí.

7. Fógetagarður – Setuaðstaða og strengjaskúlptúr, er nú þegar tilbúið.

8. Árbæjartorg – Borgarræktunar- og setusvæði er nú þegar tilbúið.

9. Snekkjuvogur –  Svið hverfisins er nú þegar tilbúið

10. Gnoðarvogur – sætisaðstöðu komið fyrir á bæjartúnið aftan við Gnoðarvog.

11. Laugalækur  - byrjað að afmarka íverurými og stefnt á markað á menningarnótt.

12. Arnarbakki – Hengirúm og sveppakollar mynda nú þegar íverusvæði fyrir börn og fjölskyldur.  Tjarnarpartý og söguganga  í undirbúningi.

13. Álfheimar – myndlistarsýning verður haldin í lok júlí. Grænmetissöluvagn á laugardögum frá11-17.

14. Markúsartorg við Gerðuberg - Aðstaða fyrir útisýningar og sölusýning Iðjubergs verður opnuð 31. júlí

Fyrstu verkefnin sem unnin voru með þessari aðferðafræði litu dagsins ljós í fyrra og þá fylgdist Borghildur, rannsóknarhópur sem einbeitir sér að öllu sem viðkemur mannlífi í borginni, með framvindu mála. Borghildur mun hafa sama háttinn á í sumar.

 

Nánari upplýsingar  >>>  www.reykjavik.is/bidsvaedi