Skólastarf að hefjast

Skólastarf í grunnskólum er hafið. Kennsla hefst í dag í eldri bekkjardeildum og á morgun hefst grunnskólaganga yngstu nemendanna en þeir eru um 1.400. Alls munu um 14.000 börn stunda nám í grunnskólum borgarinnar í vetur.

Frístundaheimilin hafa einnig tekið til starfa. Umsóknir hafa borist um dvöl 3.350 6 - 9 ára barna á frístundaheimili í vetur, en umsóknum hefur fjölgað mikið undanfarnar vikur. Börn sem eru að hefja skólagöngu njóta forgangs en enn á eftir að fullmanna frístundaheimilin. Á meðan bíða rösklega sjö hundruð börn staðfestingu á dvöl.

Þess má geta að umsóknum um frístundaheimili Reykjavíkurborgar hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Þannig bárust 3.290 umsóknir fyrir 6 - 9 ára börn í fyrrahaust og 3.202 haustið 2010, 2.865 voru umsóknirnar haustið 2009.

Sjá frétt sem um nýja foreldrakönnun sem sýndi mikla ánægju með starf frístundaheimila borgarinnar.