Skóla- og frístundasvið fagnar eins árs afmæli
Ár er nú liðið síðan sameinað skóla- og frístundasvið tók til starfa. Meginmarkmiðið með þeirri breytingu var að tryggja heildstæða þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í borginni. Í tilefni af þessum tímamótum sendi Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri öllum starfsmönnum sviðsins bréf í dag þar sem segir m.a.
"Með sameinuðu átaki hefur stjórnendum og starfsfólki sviðsins á örskömmum tíma tekist að setja fram metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir fagstarfið þar sem velferð og vellíðan barna og ungmenna er í öndvegi. Í vor lá fyrir stefna og starfsáætlun sviðsins fyrir árið 2012 og þar eru stefnuþættirnir skýrir. Skóla- og frístundasamfélagið er lærdómssamfélag þar sem allir njóta jafnra tækifæra. Þar er hugað að velferð sérhvers einstaklings og byggð upp sterk sjálfsmynd, samkennd og samskiptafærni. Lýðræðislegt samstarf er eitt af leiðarstefjunum, svo og aukið flæði á milli skólastiga, námsgreina og skólans og frístundastarfsins.
Sú framtíðarsýn sem nú liggur fyrir er ekki orðin tóm. Hún er okkar vegvísir þar sem framlag hvers og eins skiptir máli. Skóla- og frístundastarf verður alltaf í stöðugri framþróun. Í þeirri deiglu er sú hugmyndafræði sem við höfum tileinkað okkur í fagstarfinu, hvort heldur er í leikskóla, grunnskóla eða í frístundastarfi, jafn rétthá."
Með bréfinu fylgdi yfirlit yfir helstu stefnuþætti á sviðinu.
Starfsfólk skrifstofu skóla- og frístundasviðs gerði sér glaðan dag í dag í tilefni þessara tímamóta og fékk sér rjómaköku með kaffinu.