Skemmtilegri Öskjuhlíð - lokafrestur til að skila inn hugmyndum er 1. september

Öskjuhlíðin er eitt stærsta útivistarsvæði borgarinnar og er mikilvægur hlekkur í keðju opinna svæða í Reykjavík. Þar eru margar náttúru- og söguminjar og fjölskrúðugt náttúrulíf. Reykjavíkurborg efnir nú til hönnunarsamkeppni Skemmtilegri Öskjuhlíð þar sem almenningi gefst kostur á að koma með hugmyndir um nýtingu svæðisins. Hugmyndirnar geta snúið að nýtingu eða breytingum, verið tillögur um varðveislu, starfsemi, uppbyggingu eða hvaðeina sem talið er að bætt geti svæðið. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur þurfi að setja fram heildarsýn fyrir allt svæðið, frekar að tillögur séu lausnir fyrir afmörkuð svæði eða almennar hugmyndir um nýtingu.

Markmið

Með samkeppninni er verið að leita eftir hugmyndum um hvernig efla megi mannlíf og styrkja útivist á svæðinu.  Vonast er til þess að niðurstöður úr hugmyndasamkeppninni verði mikilvægt innlegg fyrir endanlegt rammaskipulag svæðisins en verið er að undirbúa fagsamkeppni fyrir heildarskipulag Öskjuhlíðarsvæðisins.

Leyfilegt er að sýna hugmyndir í ýmsu formi,  s.s. með ýmisskonar teikningum í ótilgreindum mælikvarða, í texta eða á annan hátt sem þátttakendur velja. Hægt er að skila tillögum á rafrænu formi á veffangið oskjuhlid@reykjavik.is eða með því að senda tillögur  til Reykjavíkurborgar merktar  “Öskjuhlíð - hugmyndasamkeppni”  Reykjavíkurborg, Skipulags- og byggingarsvið, Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík.  Hægt verður hægt að skila inn tillögum til miðnættis  1. september 2012.

Viðurkenningar

10 tillögur fá viðurkenningar. 750.000 krónur er veitt í viðurkenningarfé og mun dómnefnd ákveða skiptingu þess á þær 10 tillögur sem valdar verða til viðurkenningar.

Dómnefndina skipa Jón Gnarr borgarstjóri sem er formaður nefndarinnar, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, heimsspekingur og rithöfundur, Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA, Sigrún Helga Lund, stærðfræðingur og Ómar Ragnarsson fréttamaður.

 

Kort af Öskjuhlíðinni (PDF).

Loftmynd af Öskuhlíðinn (PDF).