Skemmtileg vísindi

Vísindasýning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 13. október.

Norðmennirnir Ivar Nakken og Magne Hognestad vinna nú að verkefni í samstarfi við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn (FHG) sem miðar að því að kynna raunvísindi fyrir grunnskólanemendum á skemmtilegan og gagnvirkan hátt.  Þeir vinna í Jærmuseet í Noregi og hafa þar áralanga reynslu af raunvísindafræðslu til handa almenningi og nemendum á öllum aldri.  Ivar Nakken stofnaði og hefur rekið færanlegan vísindasirkus (e. Science circus) sem heimsótt hefur fjölda skóla síðan hann var stofnaður 1996. Heimsóknin hingað til lands er styrkt af norsk-íslenska menningarsjóðnum og er markmið heimsóknarinnar að miðla hugmyndum og reynslu af vísindakennslu til kennara hér á landi.

Í síðustu viku héldu Ivar og Magne námskeið fyrir grunnskólakennara og kynntu kennsluaðferðir sínar en það námskeið sóttu 25 kennarar úr grunnskólum Reykjavíkur.  Á námskeiðinu var til dæmis starfrækt efnafræðieldhús og unnið að eldflaugasmíðum. Þá hafa þeir ásamt starfsfólki Fjölskyldu- og húsdýragarðsins heimsótt nokkra skóla í Reykjavík og haldið sýningar á sal og verið með kennslu í bekkjarstofum.  Nemendur hafa meðal annars reynt sig í skutlugerð, vasaljósasmíði, byggt bíla sem knúnir eru áfram af þyngdaraflinu og útbúið lygamæla undir handleiðislu Ivars og Magne.  Áhugi reykvískra grunnskólabarna hefur verið eftirtektarverður og því án efa góður grundvöllur til reksturs vísindasafns í Reykjavík en grunnur hefur verið lagður að slíku safni í Vísindaveröld Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.  Í Vísindaveröldinni geta gestir garðsins reynt sig við vísindin á áþreifanlegan hátt sem sameinar leik og lærdóm.  Slík söfn eru vinsæl víða um heim og Jærmusett og FHG eru meðlimir í félagi Vísindasafna á Norður- og Eystrasaltslöndunum (Nordisk Science Center Forbund) þar sem forðstöðumaður FHG situr í stjórn. 

Þessa vikuna munu heimsóknirnar halda áfram en heimsókn þeirra Ivars og Magne lýkur með Vísindasýningu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum næstkomandi laugardag 13. október klukkan 12.00 og 14.00.