Skáldað í tré - sýning Félags trérennismiða í Ráðhúsinu

Nú stendur yfir sýningin Skáldað í tré sem Félag trérennismiða heldur í Ráðhúsi Reykjavikur. Alls sýna 24 félagsmenn 80 rennd trélistaverk sem sýna kjarna trérennismíða á Íslandi í dag. Þar kennir ýmissa grasa, stólar, lampar, skálar, skúlptúrar og fleiri listavel gerðir munir úr tré.

Margir þeirra sem þátt taka í sýningunni hafa verið félagsmenn frá stofnun félagsins árið 1994 en nokkrir eru að taka þátt í fyrsta sinn. Þetta er í fimmta sinn sem Félag trérennismiða á Íslandi skáldar í tré í Ráðhúsinu og það er vel þess virði að fara og skoða þessa fallegu muni, sýningin er opin alla daga frá 12 til 18 en henni lýkur á sunnudaginn.