Seljaskóli fær grænfánann í annað sinn
Í dag á umhverfisdaginn 13. september tók Seljaskóli í annað sinn við Grænfánanum. Nemendur í umhverfisráði skólans veittu viðurkenningunni viðtöku.
Athöfnin hófst á því að allir nemendur skólans komu saman í hátíðarsal skólans. Þórður, Kristjánsson, skólastjóri ávarpaði nemendur, skólasöngur Seljaskóla var sunginn, Guðrún Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri flutti ávarp. Þá afhenti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdarstjóri Landverndar, nemendum grænfánann. Að því loknu var gengið fylktu liði út á skólalóð og grænfáninn dreginn að húni við mikinn fögnuð.
Grænfáninn er viðurkenning á þeirri vinnu sem nemendur og starfsfólk leggja af mörkum til umhverfisins með umhverfissáttmála skólans. Seljaskóli hefur tekið þátt í verkefninu Skólar á grænni grein frá árinu 2001.