Samstarf um rannsóknir á menntun og uppeldri ungra barna
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og RannUng, Rannsóknastofa HÍ í menntun ungra barna, hafa gert með sér samstarfssamning með það að markmiði að styrkja og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna í Reykjavík, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á því sviði.
Í samtarfinu felst að RannUng mun vinna að rannsóknarverkefni þar sem skoðuð verða tækifæri barna til frumkvæðis og sköpunar í leikskólastarfi. Þá mun RannUng halda fyrirlestra fyrir starfsfólk leikskóla um menntun og uppeldi ungra barna.
Einnig er fyrirhugað að halda í sameiningu ráðstefnu um leikinn sem námsleið í skóla- og frístundastarfi.