Samstaða nágranna við Baldurstorg

Velheppnaður vinnudagur og uppskeruhátíð var haldin á Baldurstorgi á fimmtudagskvöld. Tilgangurinn með hátíðinni var að fá fólkið sem býr og vinnur við torgið til þess að koma saman á torginu og taka til hendinni og njóta síðustu sumardaganna ásamt því að fá fram umræður og skoðanir um framtíð svæðisins.

Á síðasta ári stóð hópur að nafni Rúmmeter að endurhönnun Baldurstorgs, sem er á gatnamótum Baldurs-, Óðins-, og Nönnugötu. Það var hluti af verkefni Reykjavíkurborgar Torg í Biðstöðu sem gengur út á að gæða  svokölluð biðsvæði í borginni lífi. Á þessu ári kusu svo íbúar að þessari vinnu skyldi haldið áfram í gegnum íbúakosninguna Betri hverfi og var það mat forsvarmanna torga í biðstöðu að fá Rúmmeter aftur að borðinu. Þar sem torgið í núverandi mynd hefur vakið jákvæð viðbrögð fólks í nágrenninu gekk verkefni Rúmmeters aðallega út á að auka áhuga og ábyrgðartilfinningu íbúa og annara hagsmunaaðila við torgið gagnvart svæðinu og fá þá til að taka virkan þátt í ummönnun og þróun svæðisins til framtíðar.

Á fimmtudag hafði rignt eldi og brennisteini fyrr um daginn og óttuðustu meðlimir Rúmmeters því að mæting yrði arfaléleg. Þegar klukkan sló sex hætti hinsvegar snarlega að rigna og sólin braust fram úr skýjunum. Hópur íbúa kom þá út með vinnuhanska og áhöld og hófst handa við að hreinsa beð, sópa stéttar og setja niður fræ svo torgið muni blómstra á vori komandi. Allir tóku þátt, bæði börn og fullorðnir. Þau yngstu hlupu líka um hóla og lautir, blésu sápukúlur og léku sér með húlahringi. Margir þeirra sem mættu höfðu aldrei hist áður þrátt fyrir að búa í næsta nágrenni við hvort annað, en það einmitt megintilgangurinn með slíkum degi, að nágrannar hittist, kynnist hvorir öðrum og hjálpist að við að gera sitt nánasta umhverfi fallegt og snyrtilegt til þess að þeir geti notið þess saman.

Þegar hreinsun var lokið var kveikt upp í heimilisgrillunum sem íbúar höfðu tekið með sér út á torg og skokkað inn til Úlfars hverfiskokks á Þremur Frökkum sem hafði útbúið dýrindis grillkjöt í mareneringu. Slegið hafði verið upp tjaldi með borðum og bekkjum á torginu og var þar haldin mikil veisla. Íbúar lögðu í púkk, einhverjir komu með salat, aðrir grillmaís og enn aðrir eftirrétt. 

Meðlimum Rúmmeters reiknast til að mættir hafi verið milli 50 og 60 manns og var stemningin eins góð og hugsast getur á síðsumarskvöldi. Eftir mat var fljótlega tekið saman og hver hélt til síns heima enda fyrsti skóladagur margra Baldurstorgsbarna daginn eftir. Var það einróma ákvörðun viðstaddra að hátíðin skuli endurtekin að ári.