Samráð við íbúa um samfélags- og skipulagsmál

Skautasvell við Arnarbakka, jólamarkaður og öflugri samskipti voru meðal þess sem rætt var um á stuttum fundi með formönnum húsfélaga í Bakkahverfinu í Breiðholti og forsvarsmönnum verkefnisins Biðsvæði – Torg í biðsstöðu.  Góður andi var á fundinum sem fram fór í tjaldi  á bílastæði við Arnarbakka á fimmtudag í síðustu viku .

Tilefni fundarins var a að kynna starfs sem unnið var að í hverfinu sl. sumar á vegum verkefnisins ,,Biðsvæði – Torg í biðstöðu“.  Einnig var farið yfir hver gætu orðið næstu skref og er kallað eftir aðstoð frá íbúum við að þróa starfið í samvinnu við áhugasamt fólk í hverfinu í framtíðinni.

Í Bakkahverfi eru 1.250 íbúðir og er hér um að ræða tilraun til að sameina raddir og hugmyndir íbúa og búa þannig til sterkt afl sem haft getur raunveruleg áhrif á umhverfi sitt og samfélag með einföldum hætti. 

Til að byggja upp betra hverfi er mikilvægt að íbúar séu vel upplýstir um það sem er að gerast í þeirra nánasta umhverfi.  Kynnt var hugmynd um að setja upp einfaldan póstlista sem íbúar gætu nýtt sér til samráðs sín á milli og til samskipta við Reykjavíkurborg.  Almennt voru fundargestir ánægðir með þessar hugmyndir og sáu sér hag í að koma þeim í framkvæmd.  Gangi þær vel í Bakkahverfi er vel hægt að hugsa sér að útfæra slíkar boðleiðir á fleiri svæðum í Reykjavík í framtíðinni.

Sjá nánar á facebook síðu verkefnisins: http://www.facebook.com/bidsvaedi.