Sameiningarhátíð í nýjum Háaleitisskóla
Skrúðganga með lúðrablæstri var farin á milli starfsstöðva nýs Háaleitisskóla þegar sameiningarhátíð var haldin þar í dag í fallegu haustveðri. Þá var nýr skólafáni dreginn að húni, sungið og leikið.
Sameiningarhátíðin hófst á því að nemendur og starfsfólk í Álftamýri fóru í skrúðgöngu að Hvassaleiti þar sem Ellert Borgar, starfandi skólastjóri, og Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri fluttu ávarp. Eftir að nýi skólafáninn hafði verið dreginn að húni og nemendur höfðu sungið saman var aftur haldið í göngu og gengu þá allir nemendur skólans saman niður í Álftamýri. Skólahljómsveit Austurbæjar leiddi skrúðgönguna og fóru fremstir nemendur úr 10. bekk sem báru heiti skólans og nýtt merki.
Í ársbyrjun sameinuðust Álftamýrar,- og Hvassaleitisskóli undir heiti Háaleitisskóla. Nýhafið skólaár er það fyrsta í sögu hins nýja skóla. Í Álftamýri eru nemendur frá 1. - 10. bekk og í Hvassaleiti eru nemendur 1. - 7.bekkjar. Samtals eru því í skólanum 480 nemendur og starfsmenn eru 85. Sameinuðum skóla er óskað til hamingju með nýtt upphaf.