Sæborgarbörn í samstarfi við listamann

Skemmtilegt þróunarverkefni er í gangi í leikskólanum Sæborg þar sem myndlistamaðurinn Daði Guðbjörnsson er að gera listaverk með börnum. Leikskólinn fékk þróunarstyrk til þessa verkefnis "Okkas Sæborg". 

Verkefnið hófst nú á haustmánuðum og hafa börnin verið að vinna með listamanninum sem jafnframt byggir sína sköpun á hugmyndum barnanna. Meðal annars hefur verið leitað eftir hugmyndum barnanna um þrívítt verk sem Daði mun svo gera og verður það sett upp á lóð leikskólans.

Hugmyndavinnan hefur verið afar skemmtileg og frjó og leitað hefur verið að alls slags efnivið til sköpunar. Börnin hafa heimsótt Daða á vinnustofuna hans og hann hefur farið á allar deildir leikskólans, rætt við börnin og lesið fyrir þau. Meðal þess sem hann hefur lesið er bókin Furðurfugl sem hann gerði í samstarfi við rithöfundinni Sjón. Þá hafa börnin farið á listasöfn og sýningar og rannsakað nánasta umhverfi Sæborgar til að leita sér andagiftar í skemmtilegt sköpunarferli með listamanninum.

Það er tilhlökkunarefni að sjá hvað kemur út úr þessu skemmtilega verkefni en stefnt er að því að kynna árangurinn á Barnamenningarhátíð næsta vor.