Reykvísku þátttakendunum á Ólympíuleikunum í sumar boðið til heiðursmóttöku í Höfða
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, bauð reykvísku þátttakendunum á Ólympíuleikunum í London í sumar til sérstakrar heiðursmóttöku í Höfða í dag. Íþróttafólkinu, fjölskyldum þeirra og þjálfurum var boðið til móttökunnar ásamt forystumönnum innan íþróttahreyfingarinnar.
Borgarstjóri sagði í ræðu sinni að það væri honum sönn ánægja og heiður að taka á móti afreksfólkinu sem hefði tekist á láta draum sinn rætast um að keppa á Ólympíuleikum. „Ég vona að þið hafið öll skemmt ykkur vel á Ólympíuleikunum. Ég vona að þið hafið eignast nýja vini, hlegið saman og notið samveru hvert við annað. Eitt er víst að öll voruð þið Reykjavík og landinu öllu til sóma.“
Að því loknu var boðið upp á veitingar og gestir nutu samverunnar.