Reykjavíkurborg ræður þrjá nýja skrifstofustjóra
Reykjavíkurborg hefur ráðið þrjá nýja skrifstofustjóra til starfa í tengslum við breytingar á miðlægu stjórnkerfi borgarinnar.
Helga Björg Ragnarsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Hrólfur Jónsson hefur verið ráðinn til að gegna stöðu skrifstofustjóra skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar og Óskar Sandholt hefur verið ráðinn skrifstofustjóri þjónustu og reksturs. Nýir skrifstofustjórar hefja störf 1. september.
Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fjölmargar umsóknir bárust um þessi störf frá hæfum einstaklingum.
Helga Björg Ragnarsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
Helga Björg hefur lokið B.A. prófi í félagsfræði og M.S. prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun. Hún starfar nú sem starfsmannastjóri umhverfis- og samgöngusviðs en starfaði áður sem deildarstjóri mannauðsdeildar framkvæmda- og eignasviðs.
Helga Björg hefur sem sérfræðingur og stjórnandi aflað sér yfirgripsmikillar og haldgóðrar reynslu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur starfað fyrir Byggðastofnun, Vinnumálastofnun, heilbrigðisráðuneytið og síðastliðin sex ár hjá Reykjavíkurborg. Störf Helgu hafa gert kröfu um frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Helga Björg hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og uppbyggingu verkefna á sviði starfsmanna-, jafnréttis- og atvinnumála hjá borginni sem og hjá ríkinu. Hún leiðir nú stýrihóp borgarstjóra um úrræði á vinnumarkaði. Helga hefur í störfum sínum sem starfsmannastjóri tekist á við mörg flókin og viðkvæm mál og leyst þau á farsælan hátt.
Helga Björg þykir kraftmikil, einörð og fylgin sér. Hún er óhrædd við að takast á við breytingar og nýjungar, leggur áherslu á teymisvinnu og fær fólk auðveldlega til liðs við sig. Hún þykir líkleg til að leiða breytingar á nýjum vinnustað í góðri samvinnu við samstarfsfólk sitt og setja fram skýra framtíðarsýn.
Hrólfur Jónsson skrifstofustjóri skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
Hrólfur er menntaður byggingatæknifræðingur með rekstur sem valgrein. Hann hefur einnig stundað nám í brunaverkfræði og fyrir tveimur árum lagði hann stund á nám við opna háskólann í Danmörku (DTU) þar sem hann las m.a. um gerð ársreikninga, áætlanagerð, fjárfestingar og breytingastjórnun.
Hrólfur hefur verið stjórnandi hjá Reykjavíkurborg í nær þrjá áratugi, fyrst sem varaslökkviliðsstjóri og slökkviliðsstjóri en frá árinu 2004 hefur hann gegnt starfi sviðsstjóra framkvæmda- og eignasviðs. Hann hefur gegnum tíðina leitt fjölbreytt stefnumótunar- og breytingaverkefni, þ.á.m. víðtækar breytingar á framkvæmdasviði. Hann hefur því yfirgripsmikla þekkingu á breytingaferlum, opinberri stjórnsýslu, fjármálum og áætlanagerð.
Hrólfur þykir kraftmikill, kappsamur og úrræðagóður. Hann leitar stöðugt nýrra tækifæra og sýnir frumkvæði. Hann þykir líklegur til að verða öflugur og framsýnn leiðtogi nýrrar skrifstofu eigna og atvinnuþróunar.
Óskar Sandholt skrifstofustjóri skrifstofu þjónustu og rekstrar
Óskar er menntaður uppeldis- og menntunarfræðingur með meistaragráðu í stjórnun opinberra stofnana og diplómanám í rekstrar- og viðskiptafræðum.
Óskar hefur fjölbreytta reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar á sveitarstjórnarstiginu. Hann hefur starfað sem staðgengill skólastjóra, rekstrarstjóri heilsugæslustöðvar, forstöðumaður Rafminjasafns OR og var í stjórnendastöðu hjá Seltjarnarnesbæ í um áratug. Þar á meðal starfaði hann sem framkvæmdastjóri fræðslu-, menningar- og þróunarsviðs hjá Seltjarnarnesbæ í fjögur ár. Þar fór hann með yfirstjórn, stefnumótun og fjármálastjórn allra skóla- og menningarstofnana bæjarins, upplýsingatæknimála sveitarfélagsins, ritstjórn vefsvæðis, yfirstjórn rafrænnar þjónustu og mótun framlínuþjónustu. Óskar var einnig einn af þeim sem sá um innleiðingu skjalakerfisins GoPro hjá Seltjarnarnesbæ og hann bar ábyrgð á endurhönnun og innleiðingu allra tölvukerfa svo eitthvað sé nefnt. Óskar hefur því starfað sem stjórnandi með mikil mannaforráð og fjárhagslega ábyrgð, leitt breytingastjórnun, stefnumótun og einnig verið í forystu um innleiðingu nýjunga í upplýsingatækni og þjónustustarfsemi. Frá árinu 2010 hefur hann starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í breytingastjórnun og upplýsingatækni fyrir sveitarfélög og fyrirtæki á Íslandi, í Svíþjóð og Hollandi ásamt því að starfa fyrir Háskólann í Amsterdam.
Óskar þykir dugnaðarforkur sem hefur að leiðarljósi að hlusta á sjónarmið og hugmyndir annarra til þess að byggja upp traust og árangursríkt samstarf. Hann þykir líklegur til að verða sterkur og framsýnn leiðtogi á skrifstofu þjónustu og reksturs og hafa þor til að takast á við breytingar og koma með nýja sýn á þjónustu borgarinnar.