Reykjavíkurborg hefur staðið við öll fyrirheit vegna atvinnuátaks

Reykjavíkurborg hefur þegar ráðið 221 starfsmann í verkefninu Vinnandi vegur og er stefnt að því að í lok árs verði búið að ráða í þau 350 störf sem í boði voru vegna verkefnisins.

Öllum Reykvíkingum sem fullnýttu og fullnýta atvinnuleysisbótarétt á árinu 2012 hefur verið  boðið í viðtal til atvinnuráðgjafa í tengslum við verkefnið Vinnandi vegur.  Um er að ræða samstarfsverkefni sem stjórnvöld, sveitarfélög, aðilar vinnumarkaðarins og stéttarfélög stóðu að með það að markmiði að koma í veg fyrir að einstaklingar festist í langtímaatvinnuleysi.

Reykjavíkurborg lagði af stað í verkefnið í mars á þessu ári með 350 störf í handraðanum og áætlað er að í lok árs verði búið að ráða í þau öll. Á þeim fimm mánuðum sem liðnir eru hefur töluvert dregið úr atvinnuleysi.  Tæplega 500 hafa verið boðaðir í viðtal hjá atvinnuráðgjafa og langflestum hefur verið boðið starf.  Af þeim hafa 221 þegið starf og 215 afþakkað starf hjá Reykjavíkurborg, eða afskráð sig af atvinnuleysisskrá.

Þó svo að verkefninu undir yfirskriftinni Vinnandi vegur sé nú lokið er Reykjavíkurborg enn að vinna að því að bjóða atvinnulausum Reykvíkingum, sem eru við það að klára bótarétt sinn starf.

Reykjavíkurborg vinnur ennfremur að því í samstarfi við Vinnumálastofnun að bjóða ungmennum tímabundin störf. Áætlað er að í gegnum verkefnið Atvinnutorg  fyrir ungt fólk verði 250 ungmennum boðin tímabundin störf eða starfsþjálfun á árinu.