Reykjavíkurborg býður 325 störf fyrir atvinnuleitendur

Jón Gnarr borgarstjóri og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu í morgun samning um þátttöku Reykjavíkurborgar í atvinnuátakinu Vinna og virkni – átak til atvinnu 2013.

Með samningnum skuldbindur Reykjavíkurborg sig til þess að skapa allt að 325 störf fyrir langtímaatvinnuleitendur í 6-7 mánuði á tímabilinu 1. desember 2012  til 1. október 2013.

Á móti greiðir ríkið fullar grunnatvinnuleysisbætur ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð til vinnuveitanda með hverju starfstengdu úrræði sem skapað verður á tímabilinu desember 2012 til og með mars 2013.

Störfin sem Reykjavíkurborg mun bjóða upp á eru fjölbreytt og margvísleg á öllum sviðum borgarinnar, allt frá almennum og sérhæfðum skrifstofustörfum til garðyrkjustarfa. Á meðan fólk er í atvinnuátaksstarfi verður það hvatt til að halda áfram sjálfstæðri og virkri atvinnuleit enda er úrræði sveitarfélagsins tímabundið.

Forsendur samkomulags Reykjavíkurborgar og ríkisins er að almenn þátttaka verði meðal sveitarfélaga í verkefninu.

Með samkomulaginu er einnig tryggt að þeir sem njóta framfærslu sveitarfélaga en eru vinnufærir og í virkri atvinnuleit verður boðin ráðgjöf og greiningarviðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar eða Starfs, vinnumiðlunar og ráðgjafar. Miðað er við að Vinnumálastofnun hefji þessa þjónustu sem fyrst á árinu 2013 og ekki síðar en í september.

Þá verður áfram samstarf um þjónustu við ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem nýtur fjárhagsaðstoðar hjá félagsþjónustu Reykjavíkurborgar og Atvinnutorgið rekið áfram en það þykir hafa gefist vel.