Reykjavík sækir um World Outgames leikana

Reykjavíkurborg hefur sótt um að halda World Outgames árið 2017 og var borgarráð upplýst um það á fundi sínum í gær.  World Outgames er íþrótta-, menningar- og mannréttindahátíð sem stendur yfir í 10 daga fjórða hvert ár.  Hátíðin er haldin á vegum GLISA (Gay and Lesbian International Sports Association. Hún er opin öllum án tillits til kynhneigðar.

Fyrstu World Outgames leikarnir voru haldnir sumarið 2006 í Montreal í Kanada. Þar tóku 8.000 íþróttamenn þátt í yfir 30 íþróttagreinum. Mannréttindaráðstefna leikanna var sótt af 1.600 þátttakendum og um 1.200 manns tóku þátt í hinum ýmsu menningar- og listviðburðum sem boðið var upp á. Næstu leikar fóru fram í Kaupmannahöfn sumarið 2009 og voru íþróttaiðkendur þá alls um 5.000 og þátttakendur í mannréttindaráðstefnu leikanna 1.000 talsins. Næstu leikar munu fara fram í Antwerpen í Belgíu sumarið 2013.

Þátttakendur í leikunum koma frá öllum heimshornum. Þar koma saman íþróttamenn, listamenn og fagfólk á sviði mannréttinda - margir frá löndum þar sem samkynhneigð er enn ólögleg og falin.

Talið er að hægt verði að bjóða upp á 30 íþróttagreinar og keppnir í Reykjavík ásamt mjög kraftmiklum lista- og menningarviðburðum. Þá er enginn vafi á því að ráðstefnuaðstaðan í Reykjavík getur vel mætt þeim kröfum sem gerðar eru vegna mannréttindaráðstefnunnar sem haldin er í tengslum við leikana.

Breiður hópur fólks hefur unnið að umsókninni en reiknað er með bæði Reykjavíkurborg og ríkið komi að undirbúningi og fjármögnun leikanna og leggi m.a. til aðstöðu undir þá en sérstakt fyrirtæki mun hafa umsjón með mótshaldinu.

Þannig standa ÍSÍ, ÍTR, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Höfuðborgarstofa að baki umsókninni auk Samtakanna ´78 og fleiri. Auk Reykjavíkurborgar sækja borgirnar Rio de Janeiro, Róm, Denver og Miami um að halda leikana.

Eftir 10. desember nk. kemur í ljós hvort Reykjavík er meðal þriggja borga sem koma til greina sem mótsstaður fyrir leikana.

 

Gert hefur verið myndband til að kynna Reykjavíkurborg sem mótsstað sem hægt er að sjá hér. Reykjavík Bid for World Outgames 2017