Regnbogahátið fjölskyldunnar í Viðey

Viðey fagnar Hinsegin dögum, hýr og kát, með frábærri fjölskyldudagskrá sunnudaginn 12. ágúst í samvinnu við Félag hinsegin foreldra. Dagskráin hefst kl 14.30 en frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Gay Pride.



Dagskrá

Kl. 11.30 - 17.00 Regnbogaveitingar í Viðeyjarstofu fyrir börn og fullorðna

Kl. 14.30 Samverustund og leikir í boði Félags hinsegin foreldra

Kl. 15.30 Töframaður mætir á svæðið

Öll börn fá sérstakan glaðning við komuna til Viðeyjar.

Leikvöllur við Viðeyjarstofu og hestaleiga fyrir börnin.



Í Viðeyjarstofu verða ljúffengar veitingar á boðstólnum allan daginn; meðal annars kræklingur, graflax, síld, samlokur, vöfflur, kökur og fleira.

Siglt er frá Skarfabakka í Sundahöfn á klukkustundar fresti frá kl. 11.15 - 17.15 og oftar ef þörf krefur.



Ferjutollur er 1.000.- kr. fyrir fullorðna, 500.- kr. fyrir börn 7 - 15 ára og frítt fyrir þau yngstu.

Miðasala fer fram við ferjuskúr á Skarfabakka samdægurs.

www.videy.com